|
Vinir og vandamenn.....og aðrir menn
|
30.12.2009 17:08:23 / lala
Já sæll, árið að verða búið, hvaða rugl er þetta. Eitthvað er maður að slakast í blogginu, margar ástæður eru fyrir því held ég. Einhvern veginn hefur maður ekki verið í blogg gírnu. Ég held að flestir séu hættir að nenna svona blogg standi, bæði hvað verður lestur þess og skrif, þannig að þaðer spurng hvað maður gerir. Þessi önn hefur verið ansi strembin og óskaplega mikið að gera hjá þeirri gömlu þannig að ekki hefur gefist tími til að setjast niður og koma með misskemmtilegar frásagnir. Þó að ansi margar og gríðarlega skoplegar frásagnir hafi brotist um í kollinum á mér......já það gerist ýmislegt í kollinum á mér þó að sumirkannski haldi að þar sé bara myrkur er ekkert að halda því fram að það sé eitthvað gáfulegt að gerast þar,.....en það er oft ansi skemmtilegt og gríðarlega fyndið þó ég segi sjálf frá. Hvort eð er þá er húmor miklu skemmtilegri en gáfulegheit.......mér að minnsta kosti finnst mun skemmtilegra að umgangast fyndið fólk en gáfað...sennilega af því að þar fell ég betur í hópin.....ekki af því að ég sé ógáfuð sko...heldur aðalega vegna þess að ég er svo gríðarlega fyndin J vá ein að reyna að sannfæra sjálfa sig J Við familian erum búin að hafa það sérdeilis gott yfir hátíðirnar, höfum ekkert verið að hafa eitthvað of mikið fyrir lífinu sko, bara étið og sofið og legið í leti, ´æ það má alveg eftir svona erfitt tímabil J er það ekki J jólaboð hægri vinstir og þess háttar. Svo fer að líða að nýrri önn sem er ansi þétt skipuð verkefnum hjá öllum meðlimum familiunnar og ef að guð og gæfa leifir verður sú gamla orðin eitthvað með vorinu J ef allt fer á besta veg fæ ég titilinn Táknmálstúlkur í sumarbyrjun. Það gæti verið ansi skemmtilegt. Bjartir og skemmtilegir tímar fram undan. Þannig er það reyndar alltaf hjá mer ....ekki sjens að ég ætli að fara að bölsóttast og væla eitthvað ...ekki til í dæminu. Tek bara því sem gefst og geri gott úr því öllu, þó að stundum seu erfiðir og miður skemmtilegir hlutir sem henda mann, það sagði aldrei neinn að þetta ætti að vera eitthvað auðvelt......það hefur aldrei drepið neinn að þrufa að hafa aðeins fyrir hlutunum. Við höfum öll gott af smá bakslag og sparki í rassgatið. Það hefur enginn gott af því að fara í gegnum lífið án þess að nokkuð slæmt hendi mann. Þess vegna hef ég ákveðið að taka ekki þátt í þessu væli og bölsótti sem liggur yfir landanum. Ekki það að ég sé eitthvað að gera lítið úr þeim sem eiga bágt.....það er alls ekki svo.....ég get alveg fundið til með fólki og stutt það í gegnum erfiðleika og allt það. ...en fólk verður þá líka að sætta sig við það að ég ætla mér ekki að kvarta og kveina og jafn vel nenni ekki að hlusta á eitthvað kvart og kvein yfir einhverjum veraldlegum hlutum. Það er hart í báti hjá okkur flestum og við þurfum öll að breyta okkar lífsmunstir. Við getum gert það með brosi á vör eða fúl á móti. Ég kann ekki að vera fúl á móti. Ætla mér að takast á við erfiða tíma með brosinu...það hefur komið mér hingað og hlítur að koma mér lengra J enda hef ég líka svo gríðarlega fallegt bros J Gleðilegt ár elsku vinir og takk fyrir það gamla. Ef þu smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.
»
06.08.2009 11:48:35 / lala
Þó að blogg sé voðalega 2007 er e´g nu samt ekki alveg tilbúin að loka þessu sko. Úr litla kotinu er allt við það sama. Fórum tvær ferðir austur í sumar. Sú seinni varð styttri en ég sjálf vildi, en maður fær vist ekki allt...en ég tók alveg tveggja vikna fílu að þetta og harð ákveðin í því að á næsta ári ætla ég að ráða hversu lengi við verðum, karl og krakkar fá engu ráðið næst það er alveg á hreinu. Fórum heim á Borgarfjörð á yndislega skemmtilegt ættarmót enda föður ættin mín sú alskemmtilegasta. Gríðarlega vel lukkað....fyrir utan veðrið, eitthvað klikkaði helvítið hann siggi stormur á því þá helgina Auðvitað endað ættarmótið á því að ég var sett í næstu nefnd en ekki hvað, ég bra treysti á hann Bjarna frænda minn sem einnig var settur í nefnd vona að hann allavegna skipi mér fyrir verkum. Ég er nefnilega meiri svona thinker en dúer J Eftir ættarmót skelltum við okkur í ásbyrgi , það var yndislegt, allvegn jafn fallegt þar og mig minnti, fór þangað í skólaferðalag 1989 J Já ekki má nu gleyma því að Nanna og Siggi (Nanna er sko litla systir Smára) eignuðust frumburðinn sinn í júlí, munaði innan við tveimur tímum á því að e´g fengi hann í afmælisgjöf, en hann var tekinn með bráðakeisara rúmlega tíu á kvöldi 13.júlí. J litli prinsinn þeirra fær einmitt nafn núna á sunnudag, hlakka mikið til, samt pínu hrædd um að ég verði dauð úr forvitni yfir nafninu áður en sunnudagur rennur upp.....shit hvað það er sárt að vera svona forvitin. Hin systir smára hun Gunna er einmitt a landinu núna með hópinn sinn. Ekkert smá gaman að fá að eiða með þeim smá tíma...verst hvað ég skil krakka greiin illa, þar sem þau eru dönskumælandi....Þröstur minn ekkert smá hissa á því að ég skuli ekki kunna dönsku....komin í Háskóla og allt  Annars erum menn bara hressir og kátir og engin svínaflensa farin að hrjá okkur enn, bíðum spennt eftir henni J Svo fer bara að styttast í skóla bæði hja krökkunum og mér J GAMAN AÐ ÞVI BARA
»
21.06.2009 12:18:36 / lala
Þetta er alveg skelfilegt. Ég er búin að vera í sumarfríi síðan í apríl, kallinn fer ekki í frí fyrr en í júlí, ég er alveg við það að láta lífið af leiðindum. J er alvarlega að spá í að taka stuttann rúnt austur á land á þriðjudag með krakkana. Kemst ekki fyrr en á þriðjudag þar sem að Rannveig mín er út í Viðey á skátamóti og kemur ekki fyrr en um tvö á þriðjudag í land. Talandi um það....ég er alveg að fara yfir um að hún skuli vera þarna. Höndla það endalaust illa að hafa börnin min ekki hjá mér. Hef áhyggjur af þvi að eitthvað komi fyrir, að henni sé of kalt, að hún sé of svöng, eða bara eitthvað.......krakkinn er samt 12 ára, sá al skynsamasti og sjálfstæðasti sem ég þekki þannig að mínar áhyggjur eru væntanlega óþarfar....en svona er ég. Við meira segja kiktum út í viðey í gær, Þröstur fór fyrst á æfingu í rvk og svo skutluðumst við aðeins út í viðey, heilsa upp á dömuna og fá okkur kaffibolla og sonna, hún var nú ekki parhrifin, rétt heilsaði okkur þegar hún kom hlaupandi úr kvennahlaupinu, sagði okkur að það væri ógeðslega gaman og eiginlega bað okkur bara vinsamlegast um að fara, tónninn var allavegna þannig hihihihi. Ég er sem sé alvarlega að spá í að pikka dömuna upp á bryggjuni á þriðjudag og bruna austur fram á laugardag eða svo....þar sem að daman er að fara á mánudag eftir viku í sumarbúðir hihihi soldið busy barn. En svo er spurning hvortég láti verða að því....kemur í ljós...kemur í ljós. Held samt að besti leiðindaeiðirinn sé að fara á austurlandið
»
09.06.2009 11:53:46 / lala
Verð bara að monta mig smá. það sem ég ´segi, ég á að búa til fleiri börn, virðast bara koma gáfumenni og snillingar undan mér Rannveig Ósk: Ritun – 10 Málfræði – 10 Bókmenntir - 10 Lestur - 9,5 Lesskilningur – 10 Ljóð - 10 Skrift - 9 Stafsetning - 9,5 Stærðfræði - 10 Enska- 9 Samfélagsfræði- 9,5 Náttúrufræði - 10 Íþróttir - 9 Sund - 9,5 Heimilisfræði - 10 Tækniment/smíði – 9 Tölvufræði - Gott Einnig fékk hún viðurkenningu fyrir góðann árangur í myndmennt sem og verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í sínum árgangi J Þröstur Ingi : Ritun – 9,5 Lestur – 8 Málfræði – 9 Lesskilningur – 6 Skrift – Ágætt Stafsetning – 8,5 Stærðfræði – 8 Íþróttir – 10 Sund – 9 Myndmennt – 10 Tæknimennt/smíði- 8,5 Tölvufræði - Gott Einnig fékk hann viðurkenningu fyrir góðann árangur í myndmennt. Sem og framúrskarandi námsárangur í sínum árgangi J
»
26.05.2009 16:57:57 / lala
Jæja. Þa eru allar einkunnir komnar í hús og gamlan bara þokkalega sátt....hefði alveg geta gert betur, getur maður það ekki allaf....en þetta gekk bara fínt og gamlan með nógu háa einkunn til að komast í túlkinn á næsta ári sem er það sem stefnt var að frá upphafi. Alltaf nóg að gera hja krökkunum að vanda. Þröstur keppti á brotamóti um daginn í tveimur greinum og kom heim með tvö silfur. Þar á unda keppti hann á innanfélagsmóti þar vann hann sem armbeygjumeistari og karftsparkmeistari J lukkulegur með það auk þess að vera valinn nemandi ársins innan keflavíkurdeildarinnar J ekki slæmt. Svona er það þegar menn uppskera eins og þeir sá J Nú ný liðna helgi fór þrösturinn svo austur á land að heimsækja nafna sinna heima á borgarfirði. Fór í fyrsta sinn einn í flugvel sem gekk svona glimrandi vel miða við alla flughræðsluna sem í honum býr. Þetta var skemmtileg ferð og þeir nafnar vafalaust haft það gott í góðu yfirlæti hja Hoffunni okkar. Þrösturinn minn hitti afa sinn og sússu sem og krakkana á þeim bænum. Alltaf gaman að kíkja austur í sæluna, næst fer ég með það er á hreinu. Rannveig mín ætlar að eiða mest öllum júni með skátunum þar sem að hun er að fara á tvö skátamót og síðna í sumarbúðir. Henni leiðist ekki á meðan það er alveg á hreinu. Mikil spenna í henni að losna aðeins frá tuðandi múttu J Annars erum við bara hress og kát....hér er veriða ð brjóta allt og bramla og moka sundur og saman lóðina þar sem að hann smári er að skipta um vatns og skólplög...skemmtilegt. ég hins vegar sóla mig bara á pallinum og reyni eftir fremsta megni að vera ekki fyrir J Lífið er sem sé yndislegt. Hvað er hægt að biðja um meira. Yfir og út.
»
24.05.2009 12:30:47 / lala
Ég veit alveg að yfir sumu á maður að þegja og þetta er eitt af því en þar sem ég hef svo óskaplega mikinn húmor fyrir sjálfri mér og minni heimsku bara verð ég að segja frá þessu. Fyrir þa sem sé sem ekki vita þá er ég kannski “aðeins” of feit hihihi alls ekki mikið hihi og maður gerir sér alveg grein fyrir því að möguleikinn á hjartaáfalli er töluverður, það sennilega hefur haft áhrif á það að ég ákvað að fara til læknis í gær. Ég venjulega fer aldrei til læknis en í gær...eftir að hafa verið með ofsalega mikinn hjartverk nóttina áður og allann gærdag, bæði smári, nanna og ester aðeins farin að hafa áhyggjur og gamlan jafnvel sjálf orðin pínu hrædd ákvað ég að fara á bráðamóttökuna í gærkveldi og tjekka á þessu öllu saman. Mæti þangað í gærkvöldi borga litlar 4600krónur fyrir að hitta læknirinn, hvað er málið með það. Þegar ég sé læknirinn sem tók á móti mér var ég að hugsa um að snúa við, þetta var lækna fífl sem ég vildi ekki sjá eftir að hann tók á móti Rannveigu minni þegar hun missti putta,....ég er mjög dómhörð og þeir sem einu sinni bregðast mér verða bara settir út í kuldann. En karl greiið var mjög almennilegur. Hann aðeins fer yfir mína sögu og fær lýsingar á hjartverknum gríðarlega. Ákveður að fara beint með þá gömlu í hjartalínurit. Alskonar drasl og leiðslur tengdar við þennann líka netta kropp og tækið sett í gang. FÍNT, bilað hjartalínuritartæki, læknadruslan kallar á hjálp og inn kemur hjúkka, ( sem ég auðvitað þurfit að þekkja), hún fer yfir tækið og skilur ekkert hvað var að. Það var því tekið á það ráð að hringja á efri hæðina og fá þá til að senda niður annað línuritartæki. Það er tengt við þá gömlu og loksins fer eitthvað að gerast.................................................................................................................sem sé eftir klukkutíma vesen á spítalanaum, hjartalínurit og allann pakkann fæ´eg að vita það að ég er með vöðvaverki....a.k.a ....harðsperrur.......... Já fint. Ég var sem sé alls ekkert að gera mig að fífli. Neinei. Ég er alveg viss um að læknirinn hefur fengið hjartaáfall af hlátri þegar fíflið ég labbaði út úr byggingunni. Harðsperrur........er maður hálfviti eða hvað 
»
11.05.2009 15:19:20 / lala
Jæja. Á er sú gamla komin í sumarfrí....að minnsta kosti þar til að það kemur í ljós að ég hafi fallið í einhverju og þarf uptöku...en það er seinna tíma vandamál. Sumarrið byrjar með roki og rigningu af keflvískum sið...fari það til andskotans. Sumardeginum fyrsta var eitt með skátum. Þar sem að rannveig er skáti allveg í gegn var byrjað á skrúðgöngu, svo var það skátamessa og svo var endað í skátagilli í skárahúsinu í roki og rigningu og hætta þurfti við að grilla pulsurnar og þær voru bara soðnar í potti Annars var sú gamla í sumarbústað um helgina....þriðju helgina í röð. Þessi sumarbústaða þrenna byrjaði fyrir þrem helgum í Ölfusborgum, þar vorum við eina helgi þar sem stubburinn okkar hann þröstur var að keppa á taekwondo móti á selfossi. Drengurinn uppskar gífurlega og kom heim með silfurpening fyrir form, bikar fyrir bardaga og svo rosa stórann og flottann farandbikar þar sem að hann var valinn nemandi ársins, mikill heiður enda drengurinn vel búina ð vinna fyrir þessu. Stoltið ekki minna í foreldrunum en drengnum J systur hans fannst þetta nu ekki merkilegt enda þolir hun ekki bróðir sinn hihi. Helgina þar á eftir fórum við smári í sumarbústað með svölu vinkonu og hrannari, tilefnið var annars vegar 30 ára afmæli hennar og hinsvegar væntanleg útskrift hennar svölu sem hjúkurnafræðingur. Það var ljúft og mikið spilað J Nuna nýliðna helgi fór ég svo ein með táknmálsnemum í sumarbústða.....vorum að fanga því að við værum búnar með þennann vetur. Það voru sem sé síðustu skil á fimmtudaginn. Þetta var yndisleg ferð og mikið afslappelsi. Nú tekur bara mitt gamla góða líf við sem heimavinnandi húsmóðir í fullustarfi. Fyrirhuguð vorþrif ...aldrei að vita nema maður virki hrærivélina meira en venjulega ,.....ef það er hægt J og svo er það ræktin og meiri ræktin. Gamlan er sem sér hér með komin í sumarfrí og kaffi Bergvegur opinn á ný JJJJJ hlakka til að sjá ykkur.
»
15.04.2009 22:50:21 / lala
»
11.04.2009 21:11:25 / lala
118 heimsóknir í dag....nei hættu nú alveg.....hver bauð ykkur eiginlega, eru menn bara hangandi í tölvunni um páskahelgi hvað er þetta......og e´g var ekki einu sinni að blogga. þokkalega cool. fæ heimsóknir þótt ég bloggi ekki......skildi fólk lika koma í heimsókn heim til mín ef ég myndi þegja allann tímann.......þá fyrst fer fólk kannski að koma......prufa það
»
22.03.2009 19:42:09 / lala
Alls ekki misskilja mig. Ég hef alls ekkert á móti hundum, hundar eru yndislegar skepnur..svo lengi sem þeir eru þokkaleg upp aldir. Hins vegar er ég alltaf að fatta það meir og meir að ég hef ýmislegt á móti hundaeigendum og lausleg könnun mín á þeim leiðir það í ljós að ansi stór prósenta hundaeigenda á íslandi eru illa uppaldir og hafa í raun ekkert við hunda að gera. Ég var sem sé í apoteki á föstudaginn sem er nu ekki frásögum færandi, ég bara sallaróleg að vanda í biðröð að bíða eftir að ég kæmist að á kassa til að borga. Gellan á undan mer var að kaupa sér einhvern óþarfa...það er annað en ég hihihi. En allavegna...allt í einu heyri ég í hundi gelta inn í apótekinu. Apotekara kona sem var nálægt hundinum skammaðist í hundinum og sagði honum að hann mætti alls ekki vera inn í búðinni......en hvað gat hundgreiið gert........heimski eigandi hans..sem var sem sé gellan sem var á undan mér að kaupa sér óþarfa hafði verið svo rosalega sniðug að binda hundinn....eina og venjulegir vel uppaldir hundaeigendur gera alla jafnan, ....nema þessi snilldar fáráður batt hundinn sinn ekki fyrir utan apótekið....neinei.....hún batt bara dýrið við eitthvað drasl inn í apótekinu...örugglega svo hann myndi ekki hlaupa í burtu. Hundurinn sem sé gelti og gelti og heimski eigandinn fór að afsaka sig á því að hundurinn væri nu ekki vanur að gelta svona. Apótekarinn fór nu eitthvað með smá pirringstón að segja við eigenda fíflið að það væri alveg stranglega bannað að koma með hunda inn í apótek, af heilbrigðis ástæðum og út af ofnæmi og eikkað bla. Þá svarar þessi óskaplega illa gefni eigandi að hennar hundur færi aldrei úr hárum og að enginn gæti verið með ofnæmi fyrir honum. Biddu er fólk eikkað vangefið eða....ég bara á ekki til eitt einasta orð yfir fólki. Það sem meira er að þetta er ekkert einsdæmi. Hef oftar en einu sinni lent í fólki sem kemur með hundana sína inn í fiskibúðina hja múttu og verður bara rosa fúlt og hneikslað þegar maður rekur þetta lið út. Ég er bara svo orðlaus að ég veit ekki hvað ég á að segja.
»
26.02.2009 16:58:52 / lala
Jæja....það er bara svona... smá viðbrögð....ég er svo einföld að ég þarf ekki meira hihi. Reyndar var enginn sem kvittaði sem kom mér á óvart...vissi um þessa aðila sko...nema Möggu Braga..hihi gaman að því...Magga kenndi mér sko á blokkflautu í denn...... og ég kann alveg helling enþá...var ekki vinsæl mamma þegar krakkarnir áttu að vera að æfa sig á flauturnar í 2.bekk og ég var alltaf búin að rífa flautuna af þeim og farin að spila „óskasteinar“ eða eikkað álíka skemmtilegt. J já ég veit....eg var einu sinni Nörd.......en mikið vatn runnið til sjávar síðan þá.....engu að síður er ég enþá Nörd hahahhahhahahahhahahahhaha en svona er lífið. Þessa vikuna er enginn skóli hja mer, bara ljúft. Það er nefnilega verkefnavika og ég nenni alls ekki að gera verkefnin sem ég á að skila eftir helgina, ef ég þekki mig rétt verður andvökunótt nóttina fyrir skiladag, það er alltaf þannig. merkilegur djöfull, sér í lagi með það í huga að ég vinn alls ekki vel undir pressu, man það alltaf þegar ég er að vinna undir pressu en gleymi því alveg jafn óðum Reyndar var ég voðalega dugleg og skilaði einu verkefni í fyrradag, tveim dögum fyrir skiladag, skildi alls ekki þetta verkefni og var vafalaust að svara vitlaust en ég skilaði því...agalega lukkuleg með það....og í dag var skilafrestur lengdur um viku....fari það hábölvað....kennarinn hefur pottþétt skoðað verkefnið og hugsað......“vaddafokk, er hún fífl, þarf greinilega að skýra þetta betur út fyrir liðinu“ og svo ákveðið að setja frest a´skil hahhahahhahahhahahahaahha Annars er gamlan bara hress sko, drakk af sér rassgatið síðustu helgi og var þunn í tvo daga.....þoli ekki áfengi. Bölvað vesen að vera altaf boðin í afmæli, var í 30 afmæli hja fyrrverandi granna, shit hvað það var gaman J í gær átti svo Hoffan mín afmæli, í dag eru það tvíburarnir Ys og Þys(ýrr og sif) og á morgun verður vandræða gemmsin hún ester 30. Ef ég þekki hana rétt tekst henni að gera einhvern skadal, hun fer ansi létt með það pían     Nenni ekki meir......yfir og út. Já og Ásta Kr(óna) ég er til í hitting hvenær sem er J
»
21.02.2009 16:31:52 / lala
sKO........68 manns bunir að kika hingað í dag.....og eg sem var ekki neitt að gera af mér aldrei þessu vant. maður verður bara feiminn.......varla að maður þori að blogga...finnst að maður veit ekki hverjir það eru sem eru að lesa.....fram að þessu hélt ég að það væru bara Þöstur og Ester....og kannski einn tveir til viðbótar?
Skora á ykkur að kvitta........svo ég þori nu að blogga meira
»
12.02.2009 23:30:24 / lala
Já þú meinar........bara kominn febrúar. Við Smári eigum yndislega dóttur, þið vissuð það nottla, en hún er gjörsamlega að fara með okkur þessa dagan. Hún fattaði það allt í einu að það er rosa gott að sofna aftur eftir að vekjaraklukkan hringir, þannig að hún ákvaða að láta klukkuna hringja rúmlega þrjú á nóttunni svo hún geti vaknað, slökkt á henni og farið svo aftur að sofa, gott og blessað. Nema hun vaknar aldrei við klukkuna. En það gerum við smári hins vegar. Þrjár nætur í röð hefur daman gert þetta þrátt fyrir að við höfum sagt henni að þetta væri ekki vinsælt. Nuna erum við sem sé verstu foreldrar í heimi því að ef klukkan hringir aftur í nótt verður hún tekin af krakkanum og hananú. Ekki hægt að hafa foreldrasettið draugúldið alla daga af svefnleysi....nógu úldið var það fyrir. Hey já....átti eftir að nefna það að stubburinn kom-sá-og sigraði á síðasta taekwondo móti. Stóð sig eins og hetja og kom heim með fyrsta bikarinn....ekki lítið grobbinn. Gamlan er annars bara gríðarlega hress ef einhver var að velta því fyrir sér.
»
28.01.2009 21:54:06 / lala
Það er svo mikið að gera að ég er að hugsa um að segja upp bara.....veit samt ekkihverju ég á að segja upp...frekar flókið mál hihi. Í dag voru foreldraviðtöl í skóla krakkanna þar sem að þau fengu einkunnirnar sínar. Það er náttúrulega ekki að spyrja að því að þau eru og verða greinilega ofvitar. Eina sem ekki var alveg í lagi var skriftin hjá stubbinum (ég meina kommon, hann heitir ekki þröstur fyrir ekki neitt. Hafi þið séð hvernig nafni hans skrifar???) og svo er stafsetningin aðeins í lægri kannti miða við hinar einkunnirnar en við höfum þá lika eikkað til að vinna meeð....búin að hækka sig þar síðan í vor þannig að þetta er allt að réttri leið. Aðrar einkunnir hja gaurnum voru 8, 9 og 10 í öllum fögum ekki slæmt. Rannveig slær ekki slöku við frekar en fyrri daginn og það sem hun hefur fram yfir bróðurinn er að hun hefur geðveikt gaman af náminu. Enda skilar það ser vel í einkunnum fimm 10 nokkar 9,5, nokkrar 9 og ein 8,5.....getur varla verið betra. Shit hvað mamman já og pabbin eru stolt af afkvæmum sínum enn eina ferðina. Eitt sem mér fannst fyndið....þegar ég var krakki..já og unglingur, eða sko..kannski bara alla mína skólagöngu (sem sé í dag lika ) hefur verið haft orð á því að ég tali of MIKIÐ, skil ekkert í því sko. Alltaf verið kvartað yfir óþarflega miklu blaðri í mér, sum ykkar kannski kannski við þetta. En allavegna....kennari Þrastar hafði orð á því í dag að hann hefði mikið að segja, og það sem meira er að allt sem út úr honum kemur er eitthvað að viti. Kennarinn hafði orð á því að það væri alltaf gaman að spjalla við hann og hlusta á það sem hann hefði að segja, og það væri óskandi að það væru fleiri svona í bekknum. ... sem sé Þröstur fékk hrós fyrir að tala MIKIÐ. Kennari Rannveigar hafði orð á því að það eina sem að hann gæti sett út á Rannveigu væri það að hún talaði ekki nóg. Hann vill að hún tali meira og lét hana lofa sér því að hun myndi bæta þetta og hann ætlaði ekki að segja henni að þegja þegar hun byrjaði að tala. HAAAALLLLÓÓÓ HVAÐ ER AÐ SKE. Er allt í einu gott og blessað að krakkar séu blaðrandi í tímum. Mér finnst þetta fúlt. Kannski ef að mínir kennarar hefðu ekki alltaf sagt mer að þegja í gamla dag væri ég kannski orðinn kjarneðlisfræðingur í dag. Spurning að láta þetta mál ekki kyrrt liggja og kæra þetta til siðanefndar eða eitthvað.....finna einhverja fína nefnd sem ég get kært þetta til....kjarneðlisfræðinga nefndina eða eitthvað. Ég meina..vantar alltaf kjarneðlisfræðinga og kannski er hér einn sem er að renna þeim úr greipum bara af því að mér var sagt að þegja í tímum ´i grunnskóla....og framhaldsskóla....og háskóla.
»
20.01.2009 19:55:25 / lala
Gamlan lifir J Nenni alls ekki að blogga um kreppu, mótmæli, gjaldþrot,blankheit, hækkandi vöruverð eða heimsmarkaðverð á olíu......þá virðist vera fátt eftir. Hér a bæ er allt í gríðarlega góðum gír. Ekkert nytt að frétta en þegar málin eru í góðum farveg þarf ekkert endilega að verða eitthvað nytt. Mig langar samt ógeslega mikið að fara á þorrablót austur í sæluna, en enda örugglega á því að vera skynsöm og fara ekki, nota aurinn í eitthvað annað. Þoli ekki að vera skynsöm. Vildi óska að ég léti það eftir mér aðeins oftar að vera bara kærulaus. En finnst ég sleppi blóti þá er ekki sjens í helvíti að ég sleppi neinni af þeim leiksýningum sem mig langar að sjá þessa önnina, ætti kannski bara að fara að raða þeim niður á daga. Hef annars ekkert að segja....bulla bara síðar.
»
Síður: 1 2 3 ... 19
|
Heimsóknir
Í dag: 3 Alls: 55245
|